Einu sinni voru TÍU gæsir að labba yfir götu...
24.04.2006 21:27:30 / Sísi

Sisi.bloggar.is

Jæja ég er þar með formlega hætt með þessa síðu.. takk fyrir allt þið sem genguð að henni á hverjum degi..

verið eins dugleg og fara á þessa hérna
sisi.bloggar.is

ykkar eilíf Sísí

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.04.2006 10:39:38 / Sísi

Sísí að hætta

Jabb..þar sem blog.central.is er að fara yfir í minnsirkus.is þá er ég ekki í skapi til að halda því áfram að vera hér. Minnsirkus.is sökkar.. asnalegt 101Reykjavík thingý.

Ég ætla að fara eftir hugmynd Pálínu og fara á Bloggar.is.

tala meira um það seinna. Sendi ykkur linkinn þegar að því kemur.!


Ykkar Sísí

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.04.2006 09:36:52 / Sísi

19. apríl :D

Góðan daginn allir :D

Síðasti vetrardagur er í dag.. hmm.. gegt skrítið að sumarið sé að koma, hvað þá það að prófin eru að byrja og ég er búinn í skólanum 8. mai! Þá er ég búin að vera í VMA eitt ár. Þrjú ár eftir! [´*djúphugsun*]

Stelpurnar hittust í gær. Þetta var allveg gasalega lame.. Ég og Erla hittumst í gær og vorum að láta okkur leiðast eitthvað. Svo ákávðum við eitthvað að fara náttúrlega og hitta stelpurnar [Rakel's, Pálu's, Kristjönu's, Þuru's, Höllu's, Jón Gauta's og Særúnu's og .. einhverjir fleiri. Svo ef við eigum að tala um Portúgalska dúddan á Bláu könnunni með... Djöhh.. var hann mikið að tala við okkur um hve fallegar við vorum og var mikið að hrósa Pálu og Kristjönu með hluti sem þær voru með.. Og alltí einu var hann farinn að tala um ömmu sína og gluggatjöld..[?]

Svo vildi Nanna hitta okkur Þuru eitthvað um kvöldið og við yfirgáfum liðið og fórum á rúntinn. Það var allveg gífurlega mikið spjallað.. eða ekki..!

Eftir rúman einn og hálfan tíma á rúntinum fórum við Þura aftur á Bláu könnunna, Þá var liðið farið svo við fórum bara uppá heimavist og ég hjálpaði Þuru að koma sér "heim" á vistina.

Þegar það var allt búið ætluðum við að fara til Hlyns.. en hann var ekki heima.. [aumingja Hlynur því við ætluðum að gefa honum snúð.. eða sko Þura]

Við enduðum síðan heima hjá Kristjönu og Pálu þar sem Særún,Erla og Rakel var líka að spjalla gífurlega mikið saman. Í því kom Þórunn og varð auðvitað allt vitlaust yfir því og allar geðveikt glaðar að við séum búnar í páskafríi. Þetta frí er búið að vera pain in the ass fyrir mér. Allar stelpurnar heima hjá sér.. og bara einhvernveginn fullt að gera!
Ég er loksins orðin hamingjusöm. Fjölskyldan mín e rkomin til mín aftur. Ég var líka á vistinni fitl tólf þá kom pabbi og náði í mig ;)

Svo er frumsýning JCS Í DAG!! Ég er að deyja úr tilhlökkun og að sjá þetta allve´g ÖLL atriðin frá Froleik til messías er náttla bara skemmtun! 
Svo ætla ég líka að minna fólk sem man það ekki að koma með mjólk á föstudaginn. Þeir/þær/þau sem ætla að gera það .. sem minnir mig á það að ég þarf að tala við Erlu.. öm.. Jámm.. sem einmitt í þessu hringdi bjallan. Ég ætla að koma mér til krakkanna áður en illgresið fer að hanga niður úr nösunum á mér;)

Sííjú:*

Sísí 


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.04.2006 17:04:27 / Sísi

Sísí Bloggar again

Jæja.. allir
Langaði að segja í byrjun Gleðilega Páska.

Ég fór að hugsa í gær...
Þar sem ég mælti mér mál við vinkonu mína hana Ólöfu.
Við fórum að ræða málin með kurteisi viðskiptavina við starfsfólk verslanna.
Ég hef orðið vitni af því meira en einu sinni hva fólk er dónalegt við starfsfólk verslanna.
Þetta er allveg ótrúlegt þar sem fólk drullar yfir aumingja fólkið einsog það eigi ekkert betur skilið og er einsog skítur á skóm þeirra [viðskiptavinanna]

Ég sjálf vinn í verslun og skil þetta mál meira núna enn ég gerði. Stundum er komið framm við okkur neðan við allar okkar siðmenningu. Ég skil ekki hvernig sumt fólk kemur svona fram við starfsfólk BARA útaf því að það má ekkert gera á móti. Við VERÐUM að lúta lægra haldi.

Ég hef heyrt mörg ljót dæmi um hvernig viðskiptavinir koma fram við starfsfólk og frétti ég af einum starfsmanni þar sem viðskiptavinur sló hann utanundir útaf því að hann [viðskiptavinurinn] sakaði starfsmanninn um lygi.
Hvernig stendur á því kæra fólk að svona lagað komi fyrir?


Við erum stundum að veltast fram og til baka fyrir ýmsa kúnna og gera þetta og hitt bara fyrir þá. Einungi vegna þess að það er starf okkar.
"Með ánægju skal ég hjálpa þér"
segi ég oft þó ég viti ekkert hvar varan sem viðskiptavinurinn spyr um. Ég finn hana síðan á endanum eftir að hafa snúið öllu við, inná lager til verslunnarstjóra. Eftir mikla leyt finn ég vöruna set hana í hendur viðskiptavinarins og brosi bæði fyrir kurteisi og stolt af sjáfri mér fyrir að geta afgreitt viðskiptavininn.

Samt sem áður er svoooo mikilvægt fyrir okkur starfsmenninna að fá þakkir fyrir það sem við erum að gera. Vissulega erum við að vinna vinnunna okkar og allt það við eigum að þjóna ykkur eftir bestu getu um að þið fáið allt sem þið þurfið. Annars væri þetta auðvitað ekki verslun. Enn ef fólk þakkar ekki fyrir það sem við vorum að gera. Þá er þetta ekkert gaman. Tökum dæmi: Starfsmaður óksar glaðværlega góðann dag til viðskiptavins. Viðskiptavinurinn snýr sér frá honum og gengur framhjá.. ekki einu sinni brosar. Þetta er mjög dónalegt! Hvað myndu þið gera ef starfsmennirnir myndu gera þetta við ykkur. Það yrði auðvitað allt vitlaust.!! Þetta er nákvæmlega það sama og þegar viðskiptavinurinn þakkar ekki fyrir sig við kassastarfsmann .egar hún réttir honum kortið/og eða afganginn og þakkar fyrir komuna.. Ég hef alltaf gert það síðan ég man eftir mér að vera alltaf kurteis við starfmann verslanna. Meira að segja þakkaði ég strætóbílstjórunum þegar maður fór úr honum á stoppustöðinni. Það var bara venjan. Ég verð alltaf öskuill ef foreldrar mínir eða vinir þakka ekki fyrir sig eftir svona. Einu sinni fórum við mamma í Hagkaup rétt áður enn versluninn lokaði. Það gengur og gerist að fólk einmitt kemur inn og ætlar að kaupa sér eitthvað einmitt þegar búðin lokar og það tefur okkur starfsmenninna um að fara heim. Nema hvða að ég segi við mömmu að drífa sig svo fólkið kæmist nú heim til sín og lokað búðinni. Þá segir mamma þessa settningu sem ég hugsa oft: " Búðin lokar ekki fyrr en við erum búin að versla og þau geta allveg beðið eftir okkur. Við erum að borga þeim fyrir þetta!"
Þessi settning kemur ávallt upp hjá mér. Fólk verður samt að skilja að við eigum heimili, við eigum fjölskyldur, maka, börn og félagslíf. Við borðum ekki kvöldmat fyrr en við erum komin heim. Ég held að fólk hugsi ekki svo langt. Auðvitað eru þau að borga þetta og hitt og bla, bla, bla.. en fólk verður líka að átta sig á því að ef versluninn lokar klukkan átta þá Á að loka klukkan átta.. ekki hálf níu.

Í flestum Löndum í evrópu og norðurlöndunum er það regla að ef verslun lokar t.d klukkan átta og fólk er enn inní búðinni. Þá er því skyllt að skila vörunum og koma sér út. Það LOKAR klukkan átta!!

Mér finnst að það ætti að taka upp á því hérna.
Jæja ég er hætt að væla um þetta og vona að þið skiljið eitthvað af því sem ég var að þræta um. Munið bara eitt.. þakkið alltaf fyrir ykkur. Þið fáið pottþétt eitthvað til baka frá starfsmanni. Bros og þakkir frá viðskiptavini bjarga oftast dögunum hjá okkur starfsmönnum. Við höfum líka tilfinningar.

Jæja mín búinn :D
Sísí:*

Rakst á þessar indælu myndir hjá Höllu :D
Takk Hall's :*
Þessar myndir voru teknar að æfingu og rétt fyrir sýningu á Jesus Christ Superstar

 Hulda
Mín ánægð með búningin sinn:D

Rakel, Hulda og Erla
Elskurnar mínar Rakel's og Erla's.. Sjáiði augabrúnirnar mínar.. ÞETTA gerði Sísí allveg sjálf.. með ögn hjálp frá Kristjönu aðstoðarsýningastjóra..

» 7 hafa sagt sína skoðun

14.04.2006 14:45:35 / Sísi

Sísí Elskar Pálu og Rakel

dSísí elskar Pálu.. og Rakel

Núverandi föt : Svartar plain buxur, Bleikur bolur og "golla" yfir
Núverandi skap: ha jú jú alltí læ sko.. hef samt liðið betur.
Núverandi lykt: eitthvað..Buberry Brit
Núverandi farði: dökkur augnskuggi, maskari
Núverandi áform fyrir helgina/kveldið: hmm.. lifa hana AF
Núverandi hatur: ömm.. hárið mitt það er í fokki
Núverandi ósk: hitta fólkið mitt aftur í JCS og að skólinn fari nú að byrja, Ég meika ekki að vera ein að mygla og láta illgresi vaxa útúr nösunum á mér. MIG LANGAR Í FÓLK MEÐ TÓMATSÓSU!!
Núverandi hár: Ömm var að koma úr sundi þannig að það er svona slepjulegt
Núverandi dót í vösum: Engir vasar á buxunum mínum en ég er með tyggjó!
Núverandi pirringur: æhj.. eitthvað
Núverandi aðhlátursefni: Kvöldið í gær.. OMG like a pony
Núverandi tónlist: Queen að sjálfsögðu
Núverandi bók: kláraði Harry Potter í gær.. ööm.. í fylgd með fullorðnum
Núverandi uppáhaldsleikari: Eyþór og Sindri
Núverandi uppáhaldsleikkona: Ég, Pála'sog Rakel's
Núverandi skartgripir: ekkert.. nema þetta bláa úr kóktöppunum hahaa
Núverandi löngun: Loka partý hjá JCS.. get varla beðið
Núverandi áhyggja: Sigrún systir.. hmm.. =/
Núverandi mynd: 


Jónsi bróðir
Núverandi texti á heilanum: Ommela, ommela, ommela vista.. ommela ommlea ommela vista.. ooh. nono nonolavista.. oooh nono nonolavista.. inimíní istamíní úahh úalaíní.. inimíní ísamíní úahh úalamíni..
Núverandi desktop pic: Mynd af mér með blóm :D
Núverandi eftirsjá: Að hafa ekki verið frekja og KRAFIST þess að að JCS yrði sýnt út Apríl :D
Núverandi skemmtun: Tala við Hlyn
Núverandi vonbrigði: hmm.. að hafa ekki hringt í Systur mína þegar hún lá nær dauðvona úr sársauka í rúmminu
Núverandi blótyrði: FLÖDESKÚMM!!
Núverandi staður: Inní tölvuherbergi
Núverandi hljómsveit: Queen
Núverandi söngvari: Sammála Pála, enginn annar en Eyþór
Núverandi söngkona: Erlan mín
Núverandi land: öö.. Ísland..??
Núverandi e-mail: hulda-bj@hotmail.com
Núverandi hlutir á veggnum: fullt af einhverjum landslagsmyndum og kjattæði
Núverandi uppáhaldþættir: Þú !  hohoh
Núverandi litur: Rauður og svona mosagrænn
Núverandi hlutur til að hlakka til: JCS á DVD, og lokapartýið
Núverandi Msn manneskjur:
Hlynur og TJ
Núverandi manneskja til að forðast: öö.. frænda minn
Núverandi vinir: Þú sem ert enn að lesa þetta:P
Núverandi sársauki: öö..hmm.. mér er kalt á puttunum!
Núverandi texti sem lýsir þér: J-eitthvað osborne- What if God was one of us

» 1 hafa sagt sína skoðun

14.04.2006 13:49:54 / Sísi

Bloggerí blogg

Yess..lesendur kærir, Einsog flestir vita þá er föstudagurinn langi. Þá lést Jesús Kristur á krossinum á Golgötu [Hauskúpuhæð] börnin góð.

Kvöldið hjá Erlu var eftirminnilegt. Frábær pizza hjá Gunnari Möller ;) Beikonið skarst heldur betur útúr :D:D
Nema hvað öll familyan er hérna allveg frá Trausta til Snæbjörns ;) Hekla Liv og Guðný eru ekki hérna en Sigrún var hinsvegar í þessu að lenda á Akueyrarflugvelli :S Vesen.. vesen.. allir hafa geðveikar áhyggjur:S ekki skemmtilegt :'(

Ég er að fara að vinna á morgun :) Einhvernvegninn þá er ég ekkert stressuð fyrir það .. eitthvað skritið ..
Nema hvað .. svo við sönnum hvað ég er mikill úlfaldi þá fór ég galvösk niðurí HAGKAUP í gær og keypti mér meik.. þurfti svo helv**** ekki að vera of dökkt þannig að það er einsog ég hafi sofnað undir borðlampa... annars..

Þá er ég hætt að blogga

ÉG SAKNA ALLRA SVO GEÐVEIKT MIKIÐ!

» 0 hafa sagt sína skoðun

12.04.2006 16:37:21 / Sísi

Sísí Bloggar

Jess kæru lesendur..

Vikan er búin aðvera erilsöm, eða svona næstum því ;)
Rakel, ástin mín :D Gisti hjá mér um helgina vegna ófærðar til Ólafsfjarðar og Seyðisfjarðar :D Það voru dásmalegir tímar.. Nema hvað á Laugardeginum þá fórum við til Erlu og vorum með stelpukvöld!!
Erla leigði spólur þar á meðal: Just like Heaven og Sound of Music BARA fyrir stelpur sko :D:D:D Svo sungum við eitthvað í Singstar og höfðum auðvitað eitthvað með því. Við Rakel komum með Snakk og Erla reddaði kóki :D Svo þegarlangt var gengið á kvöldið þá komu Gunnar og Hrabba [vinafólk Erlu Möller] og við sátum og hlustuðum á allveg "gasalegar" slúðursögur um hitt og þetta.
Við Rakel ákváðum svo að halda foreldrum mínum góðum svo við löbbuðum um hálf tvö leytið heim :D Það var bara gaman.
Sunnudagurinn var aðeins erfiðari.. við vissum EKKERT hvað í andsk.... við áttum að gera svo við enduðum bara niðurí Greifa og fengum okkur pizzu og brauðstandir auk þess eftirrétt klukkan hálf sex.. og matu var klukkan sjö. Við erum náttla bara gáfaðar.
Eftir matinn fórum við svo í Vídjóleiguna og tókum The Grudge og .. og ... Stepmom :D
Við vorum eitthvað geðveikt lame.. og hlóum af the grudge allveg einsog hálvitar!! Og grenjuðum yfir Stepmom.. við erum ekki heilbrigðar


Öömm.. á Mánudeginu fór Rakel :'( til múttunnar sinnar og er búin að vera þar allveg siðan.. Eftir það dró Erla mig með sér í sund.. ég hef ekki farið í sund í eitt og háflt ár minnir min bara :P

Jæja ég ætla að hætta þessu bulli :D Trausti er komin til okkar


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.04.2006 23:59:11 / Sísi

:D

Langaði bara að blogga!
Sýningar JCS eru búnar!! Fráhvarfseinkenni okkar vinkvennana er allveg í hámarki.
Lokasýning var á miðvikud. s.l og því miður þurfti litla Sísí að endilega brotna niður og láta nokkur tár ganga á milli nokkurra kinna samstarfsfélaga. Þetta er búið að vera yndislegt allt saman! Að kynnast þessu frábæra fólki allveg frá Jesú til Júdas ...
Maður skilur ekki allveg gang mála núna þar sem maður á enga afsökun að geta ekki lært heima. Eða að fá sér eplamauk í kvöldmatinnn.
Nokkrar setningar og einkahúmor sem fæddist í þessari sýningu:
*Bittu mig niður og berðu mig!!
*Júdas svíkur þú mig með kossi?
Nei, nei þú ert bara svo heimskur!!
*HÓPNAUÐGUN!!
Þú ert fífl [insert name] vilt'þú ei lifa!!


Svo maður verður ekki þunglyndur meira.. þá er ég farin að sofa..
á meðan ég man.. maður er orðin (V)MA-ingur þá vann MA, Versló júhúú.. :D:D:D:D:D til hamingju !!
á meðan ég man annað.. ÞETTA rakst ég á á muninn.is:


Jee beip.. alltaf jafn sprækar á mótmælingunni á ráðhústorgi í haust eða vor eða eitthvað man það ekkert!!
Svo fékk ég módelmyndirnar í gær :D Mín ekkert smá glöð



Ég veit léleg myndgæði..

Svo , bless í bili:
Ommela, ommela, ommela vista...

Ykkar eilíf Sísí




» 5 hafa sagt sína skoðun

04.04.2006 17:34:37 / Sísi

Hallóóó..

Seinasta sýning Jesús Krists Súperstjörnu eru í kvöld klukkan átta:cry::cry::cry::cry: Allir eru ekkert smá leiðir.. þar sem "Fjölskyldan" manns síðastliðna þrjá fjóra mánuði er að spuldrast í marga parta.. Krakkarnir sem maður er búin að kynnast eru orðnir manns bestu vinir, og maður á eftir að sakna þess sárlega að geta notið þess að vera í MA og engin horfir morðaugum á mann.. maður getur þó sagt með stolti að maður hafi verið þar í einhverja mánuði.... og maður þekkir nú næstum allar stofur og gamla skóla líka næstum einsog hársverðin á manni sjálfum.


Axel Ingi á hér eftir að fá hrós fyrir lævísi í mynda´málum. Sá var duglegur og hennti inn 185 myndum á einni nóttu inná netið.. (hann hefur ekki þurft að gera mikið það kvöldið...) En svo erum við búin að fá umsögn og fengum við heilar þrjár og hálfa stjörnu..
MA vann MH og sem stoltur (V)MA-ingur þá glotti maður smá..
Ég fann hérna allveg gífurlega skemmtilega mynd af mér í nýja bolnum mínum sem ég er allveg gasalega ánægð yfir.. enda kostaði mig rúman helv... 3000 kall!!


En ég verð að hætta þessu bulli og fara að láta Kristjönu bjútí make-a mig enda sit ég hér í gamla skóla að blogga... má kannski segja að þetta sé "Guðlast" ?? Ekki veit ég það.. ég læt hann sjálfan sjá um það þegar þar að kemur.. en það er ekki nærri því strax.


Ykkar Sísí..




» 2 hafa sagt sína skoðun

31.03.2006 12:27:40 / Sísi

Föstudagurinn 31 mars

Góðan dag gott fólk..
Ég sit hér í skólanum orðin að illgresi!! Er alltaf í eyðu á þessum tíma en því miður. þá er það núna akkúrat þennan dag sem engin nennir að vera í eyðu með mér.. en það er alltí lagi .. það er töff að vera illgresi* kaldhæðni* 5 sýning á Jesus Christ var í gær.. það var æðislegt.. ég dýrka að ver aða leika.. maður er samt pínulítið vænggefin á sviðinu.. nema þá að maður myndast bara svona herfilega illa þennann dag.. Myndirnar eru allaveganna komnar.. Jói franski (bróðir Sollu) tók flottar myndir á einni æfingunni og´ætla ég að setja nokkrar inn núna á eftir.. Ég var að spá.. eitt sem ég er allveg BRJÁLUÐ yfir og það er að lokasýning verður á Þriðjud. n.k :|:| Ég er allveg vitlaus.. það átti að vera fullt af fleir sýningum tel ég allaveganna.. tíu sýningar eru bara alls ekki nóg"!!! Ég vil fleyri sýningar hvað sem hljómsveitin segir..! Við þræluðum ekki í þrjá ansk**** mánuði fyrir tíu sýningar.. ef ég mætti ´ráða færi þetta út apríl takk fyrir pent.. jæja ég ætla að setja inn nokkrar myndir.. þetta er samt allt á muninn.is fyrir þá sem eru áhugasamir. en lyklaborðið er komið í steik svo ég ætla að hætta..

Sísí


Mér finnst þetta æðisleg mynd :D


Óli móli :D "Hva er ég að gera á sviðinu??"


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.03.2006 14:41:35 / Sísi

Mússímúss

Takk , takk Helga mín þú ert bara yndisleg :D

Allright, let\\\'s beginn........ég er MJÖG þakklát fyrir:

1.Að vera lifandi,
2. að Eiga Yndislegustu vini í ÖLLUM geimnum haha..
3. að hafa byrjað í Jesus Christ Superstar
4. að eiga Rakel að bestu vinkonu:*
5. að geta séð sólarlagið og hlustað á söngva fuglanna
6. að getað eldað
7. að eiga svo elskuleg systkin
8. ok foreldrar mínir kannski líka
9. að eiga Jesús Krist að fyrirmynd
10. Að eiga Rakel.. því það er svo margt sem ég treysti henni fyrir. :D
ætla að klukka Erlu,Sollu,Rakeli,Söru og Sif, Axel, Ömmu þína og Afa þinn.. Langömmuafabarnið þitt líka..
Á meðan ég man: þá er talað um MIG á Pálubloggi :D æðisleg enda bara æðisleg þessi stelpa :D Hérna er smá úr blogginu hennar sem hún bloggaði þegar við förum í make-up fyrri sýningu í gær.. á mánudeginu fengum við Jesus Christ Superstar-ar fráhvarfseinkenni dauðans enda ekki búin að fá frí síðan ég veit ekki hvenær.. nema.. ÞAÐ VAR HALDIÐ ÆÐISLEGT SURPLISE PARTÝ FYRIR MIG Í GÆR... takk elsku elsku: Rakel,Erla,Valdi,Halla,Óskar,Solla,Biggi, Oddur og pabbi Erlu fyrir að leyfa okkur að vera þótt hann var jafn hissa og ég :D hehe.. nema já bloggið hennar Pálu :


.....Ég veit ekki hversu oft og  mikið ég hef hugsað eins og ég sé að blogga í vikunni. Það er samt eins og með svo margt annað að nú, loksins þegar ég get bloggað, þá man ég ekkert um hvað ég ætlaði að blogga.

Kristjana vildi að ég bloggaði um það hvað  hún er frábær. Solla var ósátt, vildi að bloggið yrði um sig. Svo ég greip bara næstu manneskju og ákvað að blogga um hina yndislegu Sísí =)

Sísí er VMA-ingur af guðs náð, hennar raunverulega nafn er Hulda.Yndislegu krullurnar standa ætíð út í loftið og stóru augun stara sakleysislega á mann. Þessi manneskja er einfaldlega frábær =)
 
meira um þetta á www.blog.central.is/pady

Þín Sísí

Mynd Bloggsins


http://mail.veracomp.pl/humor/image0015.jpg#-1030738508
Hver segir að það sé ekki hægt að gera hvað sem er með hunda ;)
\


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.03.2006 11:37:54 / Sísi

Meira um Jesus Christ Superstjörnu.

Jesús Kristur Súperstjarna á Akureyri

Rokkóperan Jesús Kristur Súperstjarna var frumsýnd í Menntaskólanum á Akureyri í gærkvöldi í flutningi kóra Menntaskólans og Verkmenntaskólans á Akureyri undir stjórn Erlu Þórólfsdóttur. Hlaut sýningin góðar undirtektir áhorfenda, en uppselt var á frumsýninguna.

Á vef Menntaskólans kemur fram, að sýningar verði í kvöld og næstu kvöld.
Tekið af mbl.is í morgun:)

Fréttamynd 300960

Ykkar Sísí

» 2 hafa sagt sína skoðun

25.03.2006 14:07:58 / Sísi

FRUMSÝNING Í DAG!!!

Dagin góðir hálsar.. og lélegir hálsar.. *hóst*
Frumsýning á Jesus Christ Superstar er í kvöld og maður finnur spennuna hingað í þorpið! Generalprufan var í gær og er ég mjög stressuð yfir sumum atriðum þar sem maður fær engan tíma fyrir að skipta um föt. Ég er í latex stígvélum á sviðinu í einu atriði og það þurfti tvo fíldjarfa karlmenn til að hjálpa mér úr þeim í gær.. Takk Pálmi og Biggi.!! Sigrún systir fór í aðgerð í fyrradag. Ég hef ekkert verið neitt sérstaklega með á þeim nótum hvernig henni líður því miður. Æfingar taka allveg heilan helling af heilbrigði manns og ég hélt að ég dræpist úr þreytu í gær ég sofnaði við að mamma tuðaði í mér (sem gerist samt sem áður alltaf en..) Mamma fussaði því útúr sér þegar pabbi sagði að Malli og Sigrún höfðu farið í gær að ég hefði engan áhuga á því hvað gerðist hér heima!! HALLÓ!! Ég er hér í skólanum frá átta um morgunin til fjögur, fer þá á æfingu klukkan fimm til rúmlega tólf, er komin heim til mín hálf eitt og maður hefur ekki étið heimilismat í margar vikur einsog ALLIR aðrir í Superstar..Svo er sagt við mann að maður hafi ENGAN áhuga á því hvað er að gerast heima!!!!! Djöfulsins frekja!! Við lifum á koffíni og orkudrykkjum á meðan sýningu stendur til að halda okkur uppi.. Ég vil ekki heyra það að mér sé rassgat sama um alla heimafyrir bara sorry.. nú er JCS hugur minn allur og fólk verður að sætta sig við það!!! Ég er svo reið að ég ...Nema hvað við í Superstar-liðinu fengum frí fyrir hádegi á Föstudagin (í gær) sem var æðislegt.. við vorum samt allveg til hálf eitt að æfa .. fórum svo að sofa við Rakel .. eftir smá tal ok. Nema að við vöknuðum eitthvað um tólf.. eða ég og gerði mig tilbúna í skólann. Það var æði að fá frí. Maður var orðin einhver Zombie í skólanum úr þreitu. En besta mottó ever á við hérna.: "Þú uppsker því sem þú sáir.". auðvitað úr Biblíunni :D:D:D Svo sannarlega þá hefur þetta verk ekki orðið meistaraverk hefði Erla Kórstjóri og VIÐ unnið sleitulaust til enda ;) Erfiði mánuðina er lokið :D Æðislegt.. nú eru þrír tímar til stefnu að ég fari niður í MA og geri mig klára. Jesus Christ Superstar er komið í Morgunblaðið en er ég ekki sátt við að það sé ekki tekið t.d niður nöfn aðalleikarana einsog Eyþór, Steinunnar og Sindra mér finnst að það ætti allveg að koma fram því þessir krakkar hafa unnið ekkert smá mikla vinnu. Miklu meira en við hin. Svo röffla ég hér og grenja yfir mínum málum.. Iss, piss.. nema að ég ætla að setja hér inn útvarpsviðtalið við Erlu Kórstjóra og Steinunnar. Njótið
Útvarpsviðtalið við Erlu og Steinunni:
http://dagskra.ruv.is/streaming/akureyri/?file=4290108



Mynd dagsins:

http://www.positivt.dk/images27/0301.jpg#-1030738508


Ykkar Sísí


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.03.2006 13:15:48 / Sísi

Aðili 1 *Djöfull er heitt hérna!!* Aðili 2. *Fyrirgefðu*

Jæja á meðan ég hef legið í rúminu með 40 stiga hita og að drepast (nánar tiltekið þá hef ég drepist ansi oft í þessari viku.. allaveganna hjá Rakel.. lifna alltaf við aftur.. skritið?) Þá hef ég hugsað.. og mikið hugsað.. en ykkur kemur það ekkert við hohoho..
Ég er allveg búin að villast á dögum núna..veit nánast ekkert hvað er um að vera .. mér finnst ekkert vera laugardagur eða sunnudagur.. vááá.. hvaða dagur er aftur? Sunnudagur allveg rétt.. eða svona næstum!!
Valdi elskan, Nanna elskan, vinkona hennar sem ég hef ekki hugsun til að muna hvað heitir núna og frændi Nönnu, Bjarki svali..Komu eitthvað heim til mín annahvort í gær eða á föstud. .. skiljiði núna hvað í anskotanum ég meina?
Þau voru nú eitthvað með þeim yndilsegustu mannverum að fá ekki eitt stórt sjokk þegar þau sáu mig.. hárið var allt útí loftið og það leit passlega út fyrir það að ég væri með 40 stiga hita..ekki fallegt.. ekki fallegt.. *atsjú* afsakið!
Nema hvað *atsjú* hvað er þetta.Kristrún frænka hefur verið mér allveg yndisleg að koma og heimsækja mig..ég held innst inni að hún vilji bara smitast af mér.. hún var einmitt eitthvað að segja mér að hún veikist aldrei og hefur aldrei verið veik.. þess vegna held ég að hún sé bara þarna..neiii djóóók..;)
Ég alltaf jafn hress.. og með mína kaldhæðni hvort sem ég er með 40 stiga hita eða ekki.. það er samt allveg búin slatti af mínútum í þetta blogg...ekki léttasta verk í heimi að blogga með 40° hita skal ég sko segja ykkur.. Nema Skvísan á afmæli á morgun :D
Og hvað haldiði eiginlega að hún verði gömul?? Nei Steini ekki 25 einsog nokkrir ónefndir héldu að ég væri og búin að gifta mig og eignast einhverja krakkabjána!! Kemur sko!!
Nema hvað .. Systir mín elskulegasta er að koma með múttu og pápa norður í kvöld.. er að fara í aðgerð greyjið.. brjósklos.. aaha..!
*atsjú*.. Síðan í gærkvöld hefur samt hitinn lækkað umtalsvert eða var fastur í 39° og er núna komin niðurí sjö kommur *klapp klapp* ég ætla í skólann á morgun,.. það kemur ekki annað til greina.. ÉG VERÐ EKKI VEIK Á AFMÆLINU MÍNU!!!
Svo .. *atsjú* ég ætla að fara að sofa og verða svo hress á morgun.. en þetta rakst ég á núna í dag.. Takk Særún :* Afmæli Rakelar heima hjá mér:


Mynd númer 6
Rakel eitthvað að geyfla sig.. og við Erla að deyja úr hlátri..

Mynd númer 4
Ég er ekki vissum hvað þetta er.. eeen þetta glýtur að vera rjómi Ekki satt Rakel ?

Mynd númer 8
Stelpurnar mínar Erla og Halla:*

Mynd númer 10
Óskar og Biggi .. voða skemmtileg stund..


Og ein enn,.. svo við tölum um JCS þá er þetta Jesús og María Magdalena:


sætur svipur Eyþór!!!
Þetta er víst.. *atsjú* Eyþór og Steinunn.. eða Hr. Gúmíkall og konan hans.. hahahaha ég verð ekki eldri..

» 4 hafa sagt sína skoðun

12.03.2006 21:25:34 / Sísi

Helgin búin og önnur tekur við.. auk afmæli eftir 8 daga :D:D:D

Hæj elskur.. þó svo að engin sé voðalega mikið að lesa þetta önnur er Rakel og hennar tölva er í verkfalli. Ég var s.s núna alla helgina á Jesus Christ æfingu AUK þess að taka Rakel RÆKILEGA í gegn!!!
Ég planaði það við Óskar,Bigga og Sir Valda að "ræna henni" tape-a hana skvetta húfu ofaná hana og henda henni inní bíl og teypa hana betur þar.. bruna með hana svo heim til mín þar sem ég var búin að taka húsið svonaí gegn, herbergið mitt í gegn.. (veiiiiiii) og svo ÁTTU fullt af fólki vera LÖNGU komið EN!!!
Svo þegar Erla,Biggi,Sir Valdi og Óskar með Rakel á örmunum.. tape-aða og vissi auðvitað voðalítið hvað í ANDSKOTANUM var í gangi.. komu heim til mín og þar átti að vera voða Surprise... en neieni.. bara engin nema við 5 !! Svo samt komu Oddur,Rebekka,Solla,Særún og Halla 20 mín seinna.. Halla og Særún höfðu góða og gilda afsökun:evil::evil: En það er ekki hægt að reiðast þessum elskum:D Rakel var svo happy að ég hef ekki séð hana svona lengi.. enda eins gott líka.. hehe Núna bíð ég spennt eftir mínu afmæli HAHAHAHAH...
Svo var s.s Jesus Christ æfing frá um níu leytið báða morgna til hálf sex.. um kvöld.. erfitt og strangt.. en GEEEEÐVEIKT gaman!! *OMG*
Maðu er náttla allveg búin þegar maður er búin en ég á eftir svooo að sakna þeirra sem ég hef kynnst.. þar á meðal Jesú sjálfum.. [Eyþóri] Júdasi [Sindra Svan] Símoni [Óskari og smá Gunna.. heh.. þeir eru tveir skiljiði!?!] Englinum henni Margréti elskunni.. og bara fuuuullt af öðrum kunningjum :D Ég á eftir að fella einhver tár í lokapartýinu sem verður haldið 8 apríl næst komandi.. OG ÉG ÆTLA AÐ FARA!! eftir þetta skilja leiðir okkar Jesus Christ-ara og alvaran og ástin tekur við..
Í öllum leikritum, myndast pör.. Í þetta skipti því miður varð aðeins eitt Jesus Christ Superstar- par.. EN þetta er ekki allveg búið svo þeir sem eru bjartsýnir halda með mér.:D Það er auðvitað fyrir utan Jesú og Maríu (kaldhæðni hérna í gangi..) þá eru það auðvitað Jón Gauti og Halla! Allveg frábært.. og bara *klapp* *klapp* fyrir þeim.. *klapp* .
Svo er mánud. á morgun :D Allgjör sæla eitthvað .. fer í skólann.. til fjögur.. það af beint á Superstar-æfingu til tíu um kvöldið.. og svona verður þetta framvegis til 25. mars n.k og þá er FRUMSÝNING sem Allir sem þekkja mig ætla að fara á.. og líka þeir sem þekkja mig ekki ætla að fara á þetta MA kvosin klukkan átta 2000 kall inn fyrir almenning. 0 kall fyrir 6 ára og yngri (leiðréttið mig bara ef ég er að fara eitthvað vitlaust) og 1500 kall fyrri öryrkja og eldri borgara.. (þar á við pabba gamla.. hahahhaaha þar sem hann er öryrki og eldri borgari *djók* :lol: *má ekki vera svona vond við pabba zinn*)
Allt gott annars að frétta af mér einsog alltaf.. vona svo að ég fái ekki einkunina úr Sálfr. á morgun.. ég dey mér gekk svo illa í því.. SHIT..!
Nema hvað.. ég vildi óska að ég ætti myndir af Rakeli tape-aðri en.. svona er ljóskulýsnar í mér.. alltaf jafn gallaðar.. hahha.. nóg af blaðri..

Mynd Dagsins


http://www.jwlo.ch/humor/animals/fucking%20stick.jpg

Svo í hvert skiptið sem þið leikið ykkur við hundin.. hugsið ykku þá í Guðanna bænum tvisvar um að láta hann ná í prikið í 40 skipti...


Ykkar Sísí..:*


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10